Hetju- og lygasögur
30.04.2005 21:01:03 / Freyr

Allt að gerast

Núna undanfarið hefur verið óvenju mikið um að vera hjá mér, m.a. bílaviðskipti, ferð til útlanda og skólalok.

Síðustu helgi (fimmtudag til sunnudags) fór ég með samstarfsmönnum mínum í Ræsi til Barcelona og það var mjög gaman. Það eru nokkur orð sem lýsa ferðinni ágætlega: Labba, bjór (kók í mínu tilfelli), miðbær og skemmtistaðir. Ég var nær allan tíman með strákunum af verkstæðinu enda þekki ég þá lang best auk þess að þeir eru ekki svo mikið eldri en ég (1-12 árum eldri). Kvöldin og næturnar fóru í að djamma en á daginn var röllt um miðbæinn og næsta nágreni til þess að sjá hvernig borgin lýtur út. Af því sem skoðað var er eitt sem sker sig alveg úr, það er La Sagrede Familía. Það er kirkja sem byrjað var að byggja 1882 (minnir mig) og er enn í byggingu. Það er rosalega gaman að skoða hana og enginn ætti að fara til Barcelona án þess að skoða hana.

Fyrir nokkrum vikum síðan tókst mér hið ómögulega, loksins seldi ég Fordinn. Það gekk allt í ainu mjög vel, auglýsti hann í fréttablaðinu á laugardegi og stóð með seðlana í höndunum í hádeginu. En ég fór fljótt að finna fyrir fráhvarfseinkennum vegna þess að mig vanntaði jeppa. Um 4 leytið sama dag fór ég að skoða annan bíl og sagðist kaupa hann af karlinum um 6 leytið, við gengum svo frá viðskiftunum tveimur dögum síðar. Kagginn sem um ræðir er 18 ára (1987 módelið) af cherokee sem er mjög mikið breyttur og með fullt af skammstöfunum, m.a. VHF, CB, GPS, IPF, OX o.fl. Ég er núna búinn að keyra hann rúmlega 1000 km og er bara MJÖG ánægður með hann.

Síðasti stórviðburðurinn sem fjallað verður um að þessu sinni er það að í gær kl. 12.27 gekk ég út úr Borgarholltsskóla og þarf ekki að fara þangað aftur. Nei, það er ekki vegna þess að ég kveikti í bíl á verkstæðinu, stíflaði klósett, gaf skólastjóranum hægðarlosandi, hljóp allsber inn í matsal eða reyndi við gangavörðinn heldur………………………….ER ÉG BÚINN MEÐ SKÓLANN!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Já gott fólk, í gær kláraði ég síðasta áfangan í skólanum og útskrifast 21. maí næstkomandi.

En nóg komið af rausinu í mér í bili, hvað segið þið gott????????????

 

Kv. Bensíndraugurinn


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.02.2005 20:49:11 / Freyr

Skellti mér á skíði

Og það gekk ekki betur en þetta, sjá myndbandið gaman að stökkva hér til hliðar.


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.02.2005 17:36:48 / Freyr

Eignarréttur á mannaskít

Já gott fólk, þið lásuð rétt. Ég var að skoða humor.is og rakst á þennan link og eins og sönnum sóða sæmir smellti ég á linkinn og las það sem þar stóð. Endilega kíkið á þetta, það er ekki á hverjum degi sem fjallað er um svo mikilvæg málefni:D

Í gærkvöldi fór ég í tvítugsafmæli hjá Ívari, frænda Arnars sem er með mér í borgó, síðan var farið niður í bæ. Þar drakk ég ein og svín, reykti úr mér lungunn og endaði kvöldið á karlaklósettinu á Grand Rokk. Þetta er allt saman dagsatt, a.m.k. þetta með partíið og bæinn.

Framleiðandi þáttanna Americas next top model heitir Ten By Ten. Ef það er þýtt yfir á rómversku þá yrði það XxX. Bara smá pæling8|

Svo er að spurning dagsins: Hvort finnst þér betra, Cherrios eða Honey nut Cherrios???????????

Bensíndraugurinn

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.02.2005 12:57:54 / Freyr

????????????

Ég fór með Ómari í keilu í gær, shit hvað það var gaman. Við tókum 3 leiki. Fyrst þá skiptumst við á að vera 2-3 stigum yfir og endaði með því að ég vann 102-100. Svo kom snilldin. Ég fékk 139 stig og sló þar með metið mitt (man svo sem ekki hvað er það næst hæsta). Það var ekkert smá gaman að ná tvisvar tveimur fellum í röð ásamt slatta af "feikum". Eftir 3 leiki var staðan 3-0 fyrir mér.

Ómar fann svo fína leið til að koma fram hefndum. Við fórum í þythokkí og hann gjörsamlega JARÐAÐI mig. Yfirleitt tapa ég í þythokkí en þetta var all svakalegt. Hvernig væri nú að stofna til samskota og senda ómar á ólympíuleikana í þythokkí (hlýtur að vera keppt í því)????

Loksins virðist eitthvað vera að gerast í mínum bílamálum. Norður í Skagafirði er all svakalegur 4Runner (með amerískan bensínhák í húddinu) og er eigandi hans til í að skipta á honum og fordinum + milligjöf. Gaman að því, hér til hliðar má sjá mynd af bílnum.

Nóg í bili, kv. Bensíndraugurinn


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.01.2005 22:57:41 / Freyr

næstumþvíhappítrífrendsogfleyra

Var í tölvuverinu í gær að skjóta aðra og láta skjóta mig og endaði svo á netinu þar sem Aggi sýndi mér MJÖG steikta þætti. Þeir heita Retarded Animal Babies          Sjá: http://www.newgrounds.com/collections/rab.html Gaman af því ó já.

Munið þið eftir Endinum á Fight Club? Mér fannst hann góður og passaði vel við myndina. Það sem mér fannst gera hann svo sérstaklega flottann var lagið. Ég vissi aldrei hvaða lag það var, kannaðist bara við það, en komst svo að því á laugardaginn. Það er með Pixies og heitir "Where is my mind", alveg sérstaklega flott.

BÚ HÚ!!!!! Allur snjórinn í bænum í fararhug og sá í fjöllunum er er væntanlega að blotna allt of mikið, MÉR LÍKAR ÞAÐ EKKI OG ÆTLA AÐ KOMA Í VEG FYRIR ÞAÐ. Veit ekki hvernig en allar hugmyndir eru vel þegnar. Mér dettur samt helst í hug að kaupa bíl sem eyðir alltof miklu bensíni til að auka gróðurhúsaáhrifin og breyta þannig stefnu golfstraumsinns. Þaðer kannski full seint í rassinn gripið en ef ég hefði byrjað í síðustu viku er aldrei að vita????????

Kv. Bensíndraugurinn


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.01.2005 19:04:55 / Freyr

Freek show

Í skólanum í gær áttum við strákarir að vinna verkefni. Það fór nú svona fyrir ofan garð og neðan eins og gengur og gerist þegar kennarinn lætur ekki sjá sig (fær samt + fyrir að mæta á fimmtudag þrátt fyrir hita og almennt slappelsi). Við vorum í tölvustofunni og þegar leið á morguninn voru færri og færri tölvur með Word í gangi en þeim fjölgaði sem voru á netinu.

Það var mjög gaman því þegar 15 manns í 8 tölvum leggja sig alla fram við að finna eitthvað fyndið þá verður útkoman helv... góð. En það er eitt sem stendur upp úr. Það er heimasíða einhvers þýsks viðrinis (karlkyns) sem......................Kíkið bara á það. Slóðin er   -www.string-emil.de-

Kv. Slóðríkur

Ps. ég er svangur


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.01.2005 23:19:27 / Freyr

Á skíðum

Ég og pabbi skelltum okkur á skíði í Bláfjöll og það var mjög gaman. Færið og veðrið fínt og FULLT AF SNJÓ en því miður allt of margir á skíðum. Svo ef þið hafið gaman af því að djúpfrysta útlimi ykkar, létta veskið, klæða ykkur í steypustígvél og athuga hvort ekki sé hægt að brjóta eina löpp eða svo þá skuluð þið hypja ykkur á skíði sem allra fyrst.

Og ég hlusta ekki á neitt væl s.s. get ekki, 10 ár síðan, þori ekki o.s.frv. Munið bara "No guts-no glory".

Kv. Einn ánægður með veðurfarið.


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2005 21:13:10 / Freyr

BORGÓ Búmm Búmm Búmm

Ég bara varð að blogga aftur. BORGÓ VANN MR!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! í Gettu Betur. Unnu naumlega fyrir örfáum mínútum. Þetta var útvarpskeppni þannig að þegar borgó vinnur loksinns mr þá kemmst mr ekki einu sinni í sjónvarp. Lærði skólinn hvað????????? ÁFRAM MEÐ FJÖLBRAUT!!!!!!!!!!!!!!! Kv. Iðnneminn

» 5 hafa sagt sína skoðun

19.01.2005 20:31:42 / Freyr

Video

Þegar ég var á skíðum í gær í Skálafelli var David Attenborough á vappi í fjallinu með myndavélina sína, þar náði hann einstakri upptöku af mér í brekkunum. "Videóið" er hægt að sjá hér til hliðar: Á skíðum skemmti ég mér- undir tenglaflokknum Athyglisvert.


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2005 22:50:48 / Freyr

Takk fyrir, takk fyrir

VAAÁÁÁÁ, 16 manns búnir að skoða bloggið mitt í dag, þvílíkur árangur. Að vísu er ég að fara inná það í 3 skiptið í dag en engu að síður eru þá 13 gestir. Það verður að teljast allgóður árangur hjá bloggara sem skrifar að meðaltali 1-2 í mánuði.

Ég var bara rétt í þessu að koma af skíðum með "hele familien", pabbi, mamma, börn og bíll. Við fórum í Skálafell og það var mjög gaman. Þar er meiri snjór en ég man eftir að hafa nokkurn tíman séð á skíðasvæðum Reykvíkinga. Það sem var samt merkilegast er að Hrund kom með á skíði, frekar langt síðan síðast. En hún olli mér því miður þónokkrum vonbrigðum. Ég var alla leiðina uppeftir að hugsa um hvernig ég gæti gert grín að henni í brekkunni en svo renndi hún sér bara svona líka listavel. Þannig að ég skrifaði öll "nastý kommentin" hjá mér og nota þau bara næst þegar ég sé einhvern aula í brekkunum.

Það er annars alveg merkilegt hvað ég er einfaldur. Það þarf bara "nokkur" tonn af frosnu vatni, hól úr frosnu vatni (þ.e. stökkpall) og tvö prik til að standa á og þá er ég sæll og glaður. Eins og sagt er á útlenskunni: "Simple pleasure-simple mind".

En nóg komið af þessu rugli, ég er farinn að skoða síðu sem inniheldur einhverja ögn af vitrænum uppls., (þ.e. www.f4x4.is) annað en þessi hérna.

Kv. Snjómaðurinn Sóðalegi


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.01.2005 00:01:57 / Freyr

Hrein snilld

Einu sinni voru tvær appelsínur að labba á bryggju. Þá datt önnur þeirra í sjóinn og var alveg að drukkna. Þá kallaði hin: "skerðu þig í báta, skerðu þig í báta!!!!!!!!!!"

Þessi auli var í boði Arnars Ingasonar hf.:haha:

Af mér er bara allt gott að frétta. Um helgina tók ég þátt í n.k. V.I.P. gæslu á RISAdjammi í nýja Samskip vöruhótelinu, það var haldið vegna opnunar vöruhótelsinns. Þar voru samankomnir um 700 pissfullir miðaldra og þaðan af eldri  íslendingar sem ræddu nær aðeins um hversu gríðarmikill gróði væri í vændum hjá nýstofnuðum fyrirtækjum þess. Ég var þarna vegna þess að þetta var fjáröflun fyrir Ársæl (þ.e.a.s. gæslan).

Mér finnst alltaf jafn fyndið þegar björgunarsveitir eru ráðnar til að taka þátt í hópslagsmálum (getur farið svo ef gestirnir dreypa aðeins of mikið á guðaveigunum) og þetta var óvenjuleg gæsla að einu leyti, allir áttu að mæta í svörtum jakkafötum og svartri skyrtu (helst einnig svarthærður með svört gleraugu og vera blámaður). Þannig að þar voru samankomnir um 15 fílefldir björgunarsveitarmenn- og konur í einhverju dyravarða/lífvarða dressi, mjög töff. Gildi fatnaðarinns sannaði sig í lok kvöldsinns þegar tími var komin til að reka gestina út. Ég held, alveg grínlaust, að fólkið hafi orðið pínulítið hrætt við okkur, sem b.t.w. er bara gott mál því það auðveldaði okkur starfið. Okkur var bara sagt að vísa gestunum út án frekari fyrirmæla svo einhverjum snillingnum í hópnum datt í hug að mynda línu og reka svo fólkið út eins og rolluskjátur í réttum, það svínvirkaði.

Reyndar afrekaði ég að gera smá skandal. Sumir voru tregari til að yfirgefa barinn en aðrir og þurfti þá að vera nokkuð harður og ruddalegur til að fólkið druslaðist út. Hér á eftir kemur samtal sem ég átti við mann einn sem stóð sem fastast við barinn:

Ég: Það er nú búið að loka svo ég þarf að biðja þig að halda áfram(á eftir hinum rollunum)

Hann: Hvaða hvaða.

Ég: Þú verður að fara út eins og allir hinir.

Hann: Ég vinn hjá þessu fyrirtæki og þú skalt ekki reyna að segja mér að fara út!

Ég (búinn að heyra þetta svo oft): Þú ert orðinn pissfullur vegna alls ókeipis áfengisinns og þ.a.l. verðurðu að fara út eins og hver annar gestur hér inni !!!

Hann: Það vill nú svo til að ég á húsið og er að drekka mitt eigið áfengi svo viltu ekki bara snúa þér að hinu fólkinu???

Ég: Ehhmmm, fyrirgefðu....og hélt svo áfram að smala grillsteikum.

Læt þetta nægja í bili

Kv. Sóðinn


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.01.2005 20:37:46 / Freyr

Gleðileg jól.......

..........og farsælt komandi ár, og til vonar og vara: Gleðilega páska.

Þetta er búin að vera frábær helgi. Á föstudaginn fórum ég, Siggi og Aggi að fíflast á jeppanum við Úlfarsfell, endaði auðvitað með festu með tilheirandi snjómokstri. Eftir það var haldið á heimavígstöðvarnar (vesturbæinn) og sprengt svolítið af flugeldum, kvöldið endaði svo í tölvuverinu við Þingholtsstræti (hjá Agga).

Í gær fórum síðan ég og Pálmi (sem ég held að hafi það verkefni að fylgjast grant með mér, er nefninlega með mér í borgó, vinnur í ræsi og er í Ársæl) á jeppanum að leika okkur í snjónum upp á Hellisheiði. Þar mokuðum við örugglega nokkrum bílförmum af snjó á nokkrum stöðum til þess að losa blikkbeljuna. Eftir að hafa hleypt úr svo mikið að hann var næstum á felgunni affelguðum við (dekkið fer af felgunni og allt loft úr því). Dekkið var sett aftur á felguna en það dugði ekki til, það var örugglega ís á milli felgu og dekks svo loftið lekur þar út, svo á endanum gáfumst við upp og notuðum varadekkið.

Í dag fór ég svo á skíði í Skálafelli með foreldrunum, það var mjög gaman. Að vísu var á tímabili svo löng röð í stólalyftuna að ég labbaði bara upp á topp (alveg að mastrinu) með skíðin á öxlinni og renndi mér svo niður.

=Topp helgi þar sem ég var úti að leika í snjónum alla helgina.

Kv. Sóðinn


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.12.2004 01:54:24 / Freyr

Halló

Ekki er allur nördaskapurinn eins. Í kvöld var ég ekki að nördast í bílum heldur tölvum. er nefnilega í heimsókn hjá Mr. Agnvarði, betur þekktur undir nafninu Aggi. Þetta  er orðið helvíti magnað hjá honum. Tvö skrifborð hlið við hlið og þar er mjög öflug tölva, frekar öflug ferðatölva (auðvitað samtendgar svo maður geti nú stytt sér stundir við að skjóta eða keyra á vini sína) og að lokum sjónvarp með videotæki og nintendotölva. Helvíti flott bara þó ekki væri nematil að "chilla" með vinunum á kvöldin og svona.

Og nýjasta snilldin í þessu tölvudóti er Half Life 2. Vaaááá, hann er verulega flottur. Meðal skemmtilegra nýjunga er t.d. byssa sem tekur upp hvaða hluti sem er sem liggja út um allt og getur svo skotið þeim langar leiðir. Það er mjög "fönkí" að vera að hlaupa út um allt og plaffa á allt og alla  og sjá svo allt í einu ísskáp, skrifborðsstól, tölvuskjá eða önnur húsgögn koma fljúgandi á móti sér. Hvejum ætli hafi dottið þetta í hug?????? Þetta er næstum því nógu heimskulegt til að geta hafa komið frá mér.

Svo þau ykkar sem eruð háð tölvuleikjum, skellið ykkur á Half life 2, þið hin sem kunnið ekki að meta þá, það er tími til komin að leyfa nördaskapnum að blómstra með því að........kaupa Half Life 2.

Veit ekki hvað ég er að fara að gera um helgina, fyrir utan 2-3 tíma vinnu í fordinum,  svo góðar hugmyndir eru vel þegnar. Æskilegt er að þær feli í sér: úti, vél, snjór, hálendi, ís, jeppar, eða eitthvað í þeim dúr en allt kemur til greina (fyrir utan það að njósna um garðálfana vegna gruns um stórfelld auðgunarbrot varðandi ræktun þeirra á gerjuðum rifsberjum).

En kannast einmhver við lag sem heitir Battle Cap (ísl. rapp)???? Vitið þið hverjir gerðu lagið, eða þá kannast við hljómsveit með þessu nafni. Heyrði bara útvarpsmanninn á X-inu segja battle cap og svo byrjði þetta líka flotta lag.

Jæja, er þetta ekki gott í bili.

Kv. Sóðinn


P.S. Góðvinur minn í ræsi er ennþá (þótt ótrúlegt megi virðast) nokkuð heill á geði., ég get semsagt spurt aðeins meira:-)

» 7 hafa sagt sína skoðun

01.12.2004 23:54:23 / Freyr

Truflun eða skemmtun????????

Þannig er nú mál með vexti að á verkstæðinu í Ræsi er bifvélavirki sem er bara helv... fínn náungi, hjálpar manni þegar maður biður hann um það og gerir ekkert svakalega mikið grín að mér og hinum skynjurunum á verkstæðinu (af hverju ekki skynjarar í stað nema). Ég held ég viti ástæðuna. Hann er búinn að vera á verkstæðinu í 16 ár en á samt eftir að taka sveinsprófið. Það held ég að sé ástæða hjálpseminnar, honum finnst hann vera einn af okkur;)

En allir góðir hlutir enda að lokum. Mikið hefur borið á kvörtunum frá honum undanfarið vegna spurningaflóðs frá mér (fékk smá hjálp frá hinum skynjurunum). Sökum þess er bifvélavirkinn ágæti rambandi á barmi taugaáfalls. Spurningaflóðið hefur aukist jafnt og þétt að undanförnu. Dropinn sem fyllti mælinn var að ég komst að því að hann átti mikið breyttan Willys, einmitt með svipuðum drifbúnaði og ég ætla að setja í minn. Þá fór ég að spyrja hann hvernig, afhverju, hvar, hversvegna, og með hverju hann smíðaði sinn bíl. Það endaði á því að nú á ég á hættu að verða lögsóttur:!::!::!::!::!::!:

Hann hótaði því nefnilega áðan að ef hann missti geðheilsuna fyrir fertugsafmælið sökum ofsóknarbrjálæðis míns þá ætlaði hann að lögsækja mig og ásaka um að hafa ofsótt hann. Í framhaldi af því, bara svona upp á djókið, datt mér í hug að hringja í hann um miðja nótt og spyrja hann t.d. hvernig á að stilla inn bla bla bla bla bla........... En ég hætti við því ef hann hætir þá þarf ég að labba u.þ.b. 17 metrum lengra til að fá svör við mínum spurningum og að auki verða færri nemar á verkstæðinum til að stríða þeim "fullmenntuðu".

Ég mun skrifa meira á næstunni um góðvin minn .....

Kv. Sóðinn


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.11.2004 01:20:39 / Freyr

Allt annað en bíllinn

Eftir síðasta "kommentið" frá hrund þá get ég ekki talað um bílinn. Þ.a.l. get ég ekki sagt ykkur frá því að ég var að kaupa í hann loftlæsingu (á bara eftir að millifæra á manninn sem seldi mér hana) og er á kafi í pælingm um hverju á að breyta og hvernig. Semsagt: bannað að nota setningar sem innihalda orðin jeppi, sóði, bíll, drulla, drif, skítur, olía, tjara, dekk, vél SHIIIIT ÉH GET ÞAÐ EKKI!!!!!!!! Verð samt að reyna. 

Hmm. Einu sinni þá, nei gengur ekki. Í gær fór ég að skoða-nei gengur ekki heldur, áðan fór ég að-neeeiiiiiii, á morgun ætla ég að NEEEIIIII, í dag í skólanum var ég að skoða-aaarrrrggggggg vvveeeerrrd aa a a aaððð segggjj a a BÍLL BÍLL BÍLLL BÍLL  BÍLL BÍLL BÍLLL BÍLL BÍLL BÍLL BÍLLL BÍLL  BÍLL BÍLL BÍLLL BÍLL. Og snúum okkur að öðru.

Fyrst það eru björgunarvesti í flugvélum, eru þá fallhlífar í Herjólfi?

Þarftu hljóðdeyfi ef þú ætlar að skjóta látbragðsleikara?

Gæinn sem ekur snjóruðningsbílnum, hvernig kemst hann í vinnuna á morgnana?

Ef að þú bindur brauð með sulltu á bakið á ketti og lætu köttinn detta niður á gólf, hvort lendir á gólfinu, lappirnar á kettinum eða sultan?

Þegar litlar gular endur fara í bað, taka þær þá með sér gúmmífólk?

Hvert hendirðu ruslatunnunni þinni?

Ef að einhver sem er klofin persónuleiki ætlar að fremja sjálfsmorð, er þá litið svo á sem hann hafi tekið gísl?

Er til annað orð yfir samheiti?

Fyrst við sjáum litla fugla fyrir okkur þegar við rotumst, hvað sjá þeir þegar þeir rotast?

Kv. Sóðinn


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4